Kókómjólkurórar mínir

Peð í heiminum...I love it!

föstudagur, desember 09, 2005

Bið....endalaus bið

Vika eftir í jólafrí. Mikið rosalega hlakka ég til. Mig langar mest til að liggja með tærnar upp í loft í 3 vikur en samt læðist að mér smá samviskubit yfir að hafa enga vinnu. Finnst ég vera ömurleg landeyða fyrir að vilja bara spila wow í stað þess að vinna mér inn pening eins og aðrir heilbrigðir námsmenn. Kannski er ekki of seint að finna sér eitthvað að gera?
Undur og stórmerki gerðust í gær. Það var Bifrastarfyllerí sem ég tók EKKI þátt í. Hefur sjaldan gerst áður. Ástæðan er einföld: Misserisverkefni. Ég er bara orðin heilmikið stressuð fyrir málsvörninni í næstu viku. Þetta hlýtur samt að reddast. Eða ég vona það. En ég var allavega góð stelpa og lærði til 3 í nótt. Með bjór í hönd að vísu. Fékk þó eina truflun klukkan eitt þegar ónefndur fullur einstaklingur barði utan hjá mér dyrnar og heimtaði pítsu. Hann fékk hana en sýndi þó svo fádæma ókurteisi með því borða allt kúlusúkkið mitt og deyja svo á rúminu mínu. Þannig að ég lærði til 3 og horfði svo á Futurama restina af nóttinni. Þurfti svo að díla við skelþunnt fólk í morgun :D
Og skilst að mér sé boðið með á tequila djamm í staðinn fyrir pítsuna og kúlusúkkið :P
En það lítur ekki út fyrir að ég komist í bæinn fyrr en 17 des. :_( Og mig sem langaði svo að hitta Mardísi!! *snökt* En ég vona nú að hún verði hérna yfir jólin og geti kannski mögulega djammað laugardaginn 17? Og á áramótunum?
En það þýðir bara ekki að vera alltaf að keyra til Reykjavíkur ef maður vill standa sig vel....
En jæja, lengra verður þetta ekki að sinni, verð að skrifa inngang að 30 bls skýrslunni okkar :S Ætla svo að leggja mig aðeins. Gengur ekki að vaka svona mikið alltaf.
Getur verið að ég bloggi meira um helgina.
...Later