Kókómjólkurórar mínir

Peð í heiminum...I love it!

fimmtudagur, janúar 26, 2006

Er þetta minn eða þinn sjóhattur?

Upp er runnin sögulegur dagur. Það heyrist loksins hærra í fartölvunni minni heldur en kennaranum. Það er í alvörunni ótrúlegt að það skuli heyrast svona mikið í viftunni á þessu ..ahemm...litla.... skrípi. Spurning um að fara með hana í viðgerð en ég er, eins og alþjóð veit, háð tölvunni minni og get ómögulega misst hana í viku, hvað þá tvær.
Þetta er samt feitt vandræðalegt að sitja á fyrirlestri með heilan flugvélahreyfil fyrir framan sig. Við og við er eins og hreyfillinn ætli að springa og er þá ekki óalgengt að fólk snúi sér við til að stara skringilega á mig eins og ég geti eitthvað gert í þessu. Já, kannski get ég eitthvað gert í þessu. En við skulum láta það liggja milli hluta.

Svo er komið að árlegu mataræðisátaki mínu. Það hefst venjulega um þetta leyti árs og byrjar á því að ég kaupi mér jógúrt til að hafa í morgunmat. Sem ég borða svo ekki. Ég kaupi líka yfirleitt ávexti sem einnig munu liggja ósnertir og svona gengur þetta í tvær vikur þangað til ég gefst upp. Yfirleitt eftir viku eða svo.
Samt steig ég stórt skref í morgun þegar ég raunverulega opnaði jógúrtina og borðaði tvær skeiðar. Ég fékk mér einnig brauðsneið með osti og spægipylsu. Og glas af kakómalti. Því að allir vita að stórar breytingar gerast í smáum skrefum. Segir íhaldsstefnan. Andskotinn.
Sósíalistar eins og ég tel mig vera gera róttækar breytingar. Það segir prófessorinn minn.
Þess vegna mun ég fá mér ávöxt á eftir og salat í kvöldmat. Og borða hina jógúrtina ALLA á morgun.

Ef ég ætti Fetaost. Eða salat, svona þegar ég fer að hugsa út í það.
hmm....ég á nóg til að gera rjómasósupasta. Fokk.
Þetta mun verða erfitt.

Eftirfarandi er skrifað daginn eftir.
Ég semsagt borðaði ekki ávöxt og salat. Ég borðaði súkkulaðiköku og rjómasósupasta.
Ég byrja í megrun á mánudag. Eða þannig.

Í öðrum fréttum þá eru allir á Bifröst, it seems, komnir í missóhóp nema ég. Það getur mögulega verið að ég hafi verið erfið til samstarfs seinast :P Kannski bara. Ég kannast ekkert við þetta mál. I don't know you people ;-)

Sápuóperan sem er heimili mitt:
Ég semsagt fór að sofa í gær. Eldsnemma. Það teljast tíðindi vegna þess að það var fimmtudagur og ég var ekki að djamma. Ég átti nefnilega að mæta í mikilvægt(ekki) krossapróf í morgun.
Hins vegar tók ég ekki með í reikninginn að einn sambýlingur minn myndi halda brjálað partý klukkan 3 um nóttina. Ég semsagt vaknaði á þeim ókristilega tíma við brjáluð öskur og læti. Ég klæði mig og fer fram og þá eru 30 manns í húsinu en því miður var enginn af þeim sem átti actually heima á staðnum. Ég hefst því handa við að reka alla út og endar það þannig að ég stíg í 15 mismunandi bjórpolla og það var drepið í sígarettu á peysunni minni. Á endanum fékk ég hjálp yndis að nafni Raggi sem gekk í það að henda liðinu burt. Eftir voru þó u.þ.b. 10 manns inn í herbergi hjá Adda og héldu þeir vöku fyrir mér til klukkan 6. Því vaknaði ég 10 mín. of seint í prófið og þurfti einnig að þreyja æsispennandi leit að skóm sem á endanum fundust í fanginu á nefndum steindauðum Adda. Sem fær að þrífa alla íbúðina. Og gott betur.

Fylgist með næsta þætti af hinni æsispennandi sápuóperu: Hver á þennan banana í hillunni minni? Stay tuned.
...Later