Kókómjólkurórar mínir

Peð í heiminum...I love it!

fimmtudagur, janúar 12, 2006

Ég get ekki orða bundist um ákveðinn nýliðinn atburð í samfélaginu. Það er fyrir löngu kominn tími á að fólk fari að forðast þennan sorasnepil sem DV er orðið að. Það er ekki hægt að einn fjölmiðill komist upp með það að taka fólk af lífi án dóms og laga og án þess að sekt sé sönnuð. Og allt í þeim tilgangi að selja þetta ömurlega blað. Þessi sorglegi atburður sem átti sér stað í fyrradag sýnir eingöngu að ekki eigi að líða slíka hegðun þessara svína stundinni lengur!!! Ég skora á alla sem þetta lesa að fara á www.deiglan.com og skrifa undir áskorun til ritstjórnar DV um að láta af þessari hræðilegu ritstjórnarstefnu.

Í öðrum og léttvægari fréttum þá er skólinn byrjaður aftur og strax allt komið á fullt þar á bæ. Ég er í 6 fögum þessa önn og öll hafa mikið potential til að gera mig brjálaða strax á fyrstu vikunum. Ég veðja þó sérstaklega á Upplýsingatækni og Tölfræði. Sá sem fann upp Excel er Satan í mínum augum. Hvernig stendur á því að ein skipun gerir eitt einn daginn en svo eitthvað allt annað daginn eftir?? Svo eru leiðbeiningarnar óskiljanlegar, ég gæti alveg eins verið að lesa latínu.
Nokkrar breytingar hafa orðið á herbergisfélögum mínum. Telmu langaði að búa með kærastanum sínum og er þau nú flutt í fína íbúð við Hamragarða með almennilegri sturtu. Til hamingju með það, Telma og Eyþór! :-) Í staðinn fyrir hana er komin stúlka að nafni Bryndís en hún bjó áður í næsta húsi. En hvað get ég sagt? Við á nr 3 erum bara svo klikkað skemmtilegar að náttúrulega langaði hana meira að búa með okkur. Svo hefur Ylfa einnig hrökklast að heiman. Já, við erum svo ömurlega leiðinlegar við hana að hún þoldi ekki við(getið þið heyrt kaldhæðnina, gott fólk?). Í staðinn fyrir hana er kominn ungur drengur en hann hef ég þó ekki séð ennþá, ég held að hann sé hræddur við allt þetta stelpnager. Hann allavega flýr þegar hann sér mig :P
Mest lítið hefur verið gert af djammi undanfarið, hef bara verið að nördast og hafa það kósí :)
Er komin upp á lvl 41! Komin með Felsteed og allt barasta. Hmm..kannski kominn tími á gott djamm? Jæja það er allavega austókvöld næsta laugardag og þá verður nú pottþétt drukkið eitthvað ef ég þekki stelpurnar rétt ;-)
Að lokum þá er hér örlítill listi sem ég stal af henni Karen. Hann er bara svo drepfyndinn en þó um leið svo hagnýtur að ég varð bara að birta hann hér ;-)

Vertu betri elskuhugi – hér eru nokkur ráð frá konum....
Algeng mistök sem karlar gera:
1. Kyssa konuna ekki nóg
Góður og langur koss er stór hluti af forleiknum. Ef þú ert að flýta þér það mikið að þú gleymir að sinna kossahlutanum er líklegt að þú náir ekki að æsa hana nóg upp.
2. Blása inn í eyrað á konunni
Það er greinilega einhver gróusaga í gangi um að konur elski að láta blása í eyrað á sér. Þetta er lygi. Tunga sem sleikir eyrnasnepilinn blíðlega er aftur á móti allt annað mál!
3. Eru órakaðir
Við getum alveg viðurkennt að órakaðir menn geta verið sexý á götum úti. En prófaðu að nudda sandpappír á innanverð lærin eða á hökuna. Húðin mun sennilega flagna og ekki sérlega þægilegt.
4. Klemma brjóstin á konunni
Við skulum fá það á hreint að konubrjóst eru ekki bolludeig sem á að hnoða, eða melóna sem þarf að þrýsta á til að athuga hvort hún sé orðin nógu þroskuð til að borða. Karlmenn! Farið gætilega með brjóstin á okkur og einbeitið ykkur frekar að geirvörtunum.
5. Bíta í geirvörturnar
Þegar menn sleikja eða sjúga geirvörturnar er það yfirleitt yndislegt. En þegar varnarlausar geirvörturnar verða að naghring er það ekki svo yndislegt lengur.
6. Snúa uppá geirvörturnar
Í guðanna bænum hættið að snúa uppá geirvörturnar á okkur eins og þið séuð að stilla útvarpið í bílnum. Geirvörturnar okkar eru ekki takkar.
7. Gleyma ákveðnum líkamshlutum
Það finnast fleiri líkamshlutar á konum en brjóst og undirstell. T.d. axlir, háls, hryggur og rass.
8. Hjálpa konunni ekki úr fötunum
Ekki bara liggja við hliðina á konunni með hendina niðri í nærbuxunum hennar. Ef að þú virkilega vilt tæla hana, hjálpaðu henni þá úr fötunum.
9. Eiga ekki smokka
Maðurinn kemur með okkur heim. Og klæðir sig í smokk. Svoleiðis er það bara...
10. Ráðast á snípinn
Gjörið svo vel að umgangast snípinn með virðingu. Ekki þrýsta, snúa eða sjúga hann. Reynið frekar að nudda gætilega í kringum snípinn.
11. Taka pásur
Ef að þið takið pásu þýðir það stopp fyrir konur. Þá þurfa mennirnir að byrja frá byrjun. Ef að konan er byrjuð að hitna, haltu þá áfram. Þú getur líka farið þér hægt á meðan þú fullnægir henni. Það gefur bónus á endanum.
12. Klæða konuna úr fötunum í vitlausri röð
Engin kona vill líta asnalega út. Og maður lítur líka asnalega út þegar neðri líkamshlutinn er nakinn en maður er ennþá klæddur í sokka og peysu/bol.
13. Ráðast á sköpin
Neðri kroppur konunnar er meira en eitt gat. Taktu þér tíma áður en þú ræðst á það.
14. Nudda of harkalega
Nudd getur alltaf skapað góða stemmingu. En skildu nuddaðferðina frá nuddaranum þínum eftir heima. Ef að þú gengur of harkalega til verks getur það dregið úr stemmningunni.
15. Vilja fá konuna of fljótt úr fötunum
Ekki rífa hana úr fötunum. Það getur vel verið að Michael Douglas hafi sloppið vel frá því í erótískum spennumyndum sem að hann hefur leikið í. Taktu því rólega. Hún hefur jú lagt sig fram um að líta vel út fyrir þig. Hrósaðu henni fyrir fallegu undirfötin.
16. Fara fyrst úr buxunum
Röðin ætti að vera: bolur, sokkar, og svo buxurnar. Aldrei öfugt! Það er ekkert eins ósexý og karlmaður sem stendur á hvítu tennissokkunum með "vininn" hangandi niður fyrir bolinn. Þetta atriði er ekki hægt að leggja nógu mikla áherslu á!
17. Flýtir sér of mikið
Gefðu henni tíma, ekki flýta þér eins og þú eigir lífið að leysa. Hún mun gefa þér merki um þegar hún vill að þú setjir allt á fullt.
18. Eru of harðhentir í rúminu
Það fær henni til að líða eins og hún sé nýkomin úr tveggja vikna reiðtúr, án hnakks!
19. Koma of fljótt
Þetta er mjög algengt. Margir karlmenn koma of fljótt, og þess vegna er gott að hafa B plan um hvernig þú getur fullnægt henni.
20. Koma of seint
Þetta er nýtt! Þú ert enginn sexgúrú, bara af því að þú getur haldið út í tvo tíma án þess að "koma". Allt er þreytandi til lengdar.
21. Spyrja hana hvort að hún hafi "komið"
Annað hvort tekur þú eftir því hvort að hún hafi fengið fullnægingu, annars "kom" hún sennilega ekki. Ekki spyrja svona heimskulega.
22. Allt of gætileg munnmök
Þú ert ekki lítill kettlingur sem að lepur mjólkina í þig. Notaðu tunguna! Rúllaðu, víbraðu og gerðu bylgjur með tungunni á snípnum á henni.
23. Þrýsta höfði konunnar niður við munnmök
Nei, konum líkar alls ekki að láta þrýsta höfðinu á sér niður að getnaðarlim mannsins. Já, þetta er gert í klámmyndunum og nei þetta "fílum" við alls ekki í raunveruleikanum.
24. "Koma" í munn konunnar
Sæði er á bragðið eins og saltvatn, blandað með eggjahvítu. Það eru ekki allar konur sem að líkar þetta bragð. Segðu til svo að hún nái að forða sér áður en þú "færð það" upp í hana.
25. Hreyfa sig órólega
Þegar hún "tottar" hann á þér, liggðu kyrr. Hún mun sjá um allar nauðsynlegar hreyfingar.
26. Líkja eftir klámmynd
Klámmyndir eru skemmtun en ekki námskeið í kynlífi. Konur eru í raunveruleikanum ekki eins og þær sem að leika í þessum myndum. Þú þarft ekki að glenna lappirnar á henni svakalega út. Það þarf nefnilega ekki að vera pláss fyrir heilt tökulið í klofinu á henni.
27. Láta konuna vinna alla vinnuna
Að láta hana sitja ofan á er mjög gott. En ekki í marga klukkutíma. Skiptist á að gera gott við hvort annað, og breytið um stellingar.
28. Spyrja konuna EKKI á undan hvort að hún vilji stunda endaþarmsmök
Ein af þessum slæmu! Ef að þig langar til að stunda endaþarmsmök spurðu hana þá fyrst. Það getur vel verið að hún segi já. Þú mátt ekki bara gera ráð fyrir að hún vilji það. Og að segja að þú hafir óvart villst í vitlaust gat, er bara út í hött að segja!
29. Taka einkamyndir
Þegar þú spyrð: má ég taka nektarmyndir af þér? Heyrir hún þig segja: sem ég get sýnt vinum mínum eða setja þær á internetið. Láttu hana fá myndirnar og svo getið þið kíkt á þær saman.
30. Eru of hugmyndasnauðir
Þessar sömu tvær stellingar geta orðið leiðinlegar. Reyndu eitthvað nýtt!
31. Eru oft tæknilegir
Kama Sutra, tantrasex o.s.frv. Ef að hún vill stunda jóga hefði hún sennilega farið á námskeið.
32. Gefa konunni sogblett
Ertu 12 ára gamall? Allir sem svara þessari spurningu neitandi hætta að gefa sogbletti á stundinni!
33. Tala "dirty" í rúminu
Sumum líkar að láta tala "dirty" við sig í rúminu, öðrum líkar það ekki. Spurðu hana hvort að hún "fíli" það.
34. Gefa skipanir
Það er hægt að gera á margan hátt. Hún er hvorki hundur né hermaður...
35. Halda að allt sé yfirstaðið þegar hann er búinn að "koma"
Sýningunni er ekki lokið fyrr er allir eru fullnægðir. Það er ekkert verra en menn, sem halda að samræðinu sé lokið, bara af því að þeir eru fullnægðir.
36. Þrýsta öllu lofti út úr henni
Mundu að það eru miklar líkur á því að þú sért mun þyngri en hún. Ef þú liggur lengi ofan á henni getur andlitsliturinn hennar orðið bláleitur.
37. Þakka fyrir sig eftir kynlíf
Hún stundar kynlíf af því að henni langar til þess ekki til að þjónusta þig!

Vona að þetta upplýsi einhverja fávísa
...Later